Fótbolti

Di Matteo: Lampard þarf stundum að hvíla

Miðjumaður Chelsea, Frank Lampard, hefur aðeins verið í byrjunarliði Chelsea í þremur leikjum til þessa í deildinni í vetur en stjóri liðsins segir að hann sé enn lykilmaður.

"Hann hefur átt frábæran feril hérna og ég vona að hann klári feril sinn hjá félaginu," sagði Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, en samningur Lampard rennur út næsta sumar.

"Við höfum rætt saman og ég vil ná því besta frá honum. Þá þarf hann einfaldlega að hvíla í einhverjum leikjum. Frank er skynsamur og skilur stöðuna vel."

Chelsea spilar gegn Nordsjælland í Meistaradeildinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×