Töluverð umræða hefur verið um dræma aðsókn á leiki í efstu deild karla í handbolta undanfarin misseri. Leikmenn meistaraflokks ÍR þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af dræmum stuðningi því um 500 manns að meðaltali sækja heimaleiki liðsins og láta vel heyra í sér.
ÍR er nýliði í deildinni en það er svo sannarlega ekki að merkja á stemningunni á pöllunum.„Það eru margir sem koma að þessu og þetta gerist ekkert öðruvísi," segir
Aðalsteinn Jóhannsson í heimaleikjaráði meistaraflokks ÍR spurður um hvernig svo vel hafi til tekist í Breiðholtinu. Ballið hafi byrjað í 1. deild á síðasta ári þegar hamborgarasala á heimaleikjum var sett í gang.
„Við grilluðum 200 hamborgara ofan í liðið á klukkutíma," segir Aðalsteinn um leikdaginn þegar hamborgararnir voru kynntir til sögunnar. Þá hafi þeir gefið borgarana en í kjölfarið hafi þeir kostað 500 krónur ásamt gosi til þess að standa undir sér.
„Þá fékk fólk hamborgara og gos á 500 krónur auk þess að fá frítt inn á völlinn. Þannig kom stór hópur inn í þetta," segir Aðalsteinn.
Skrá sig í störf á netinu
Eftir að karlaliðið tryggði sér sæti í efstu deild var ákveðið að nokkrir úr barna- og unglingaráði félagsins myndu stofna heimaleikjaráð ásamt nokkrum úr stjórn handknattleiksdeildarinnar.
„Það var gert til þess að brjóta niður vegginn á milli barna- og unglingaráðs og stjórnarinnar. Við vildum mynda eitt lið, eina heild," segir Aðalsteinn en vel hefur gengið að fá sjálfboðaliða til þess að starfa á heimaleikjum karlaliðsins. Í sjálfboðaliðahópinn hafi því bæst foreldrar barna- og unglinga úr félaginu sem staðið hafa árlega fyrir fjölmennum yngri flokka mótum.
ÍR-ingar nýta Facebook vel til þess að auglýsa viðburði sína og halda utan um sjálfboðaliðastarfið. Fyrir hvern heimaleik manna þeir 31 stöðugildi á leikjum karlaliðsins og þar komist færri að en vilja. Fólk skráir sig sjálft í störfin og verður að afboða sig geti það ekki staðið vaktina á næsta heimaleik. Þá komast aðrir að.
Krakkarnir virkir
Iðkendur úr yngri flokkum félagsins eru afar virkir á heimaleikjunum.
„Til dæmis á moppunni látum við yngri flokkana skiptast á. Það er stemning að fá að taka þátt í þessu. Krakkarnir fá nafnspjald með sínu hlutverki þannig að það eru allir merktir. Þannig verður líka stemning í flokkunum hverjir fái að vera á moppunni," segir Aðalsteinn og virðist hart barist um að þurrka svita karlanna af fjölum Austurbergs. Þá leiða iðkendur einnig leikmenn liðanna inn á völlinn í aðdraganda leiksins.
„Þar skiptast flokkarnir á. Síðast var 7. flokkur kvenna og þar á undan 5. flokkur kvenna. Foreldrar krakkanna sem eru að leiða inn á fá boðsmiða á völlinn. Síðan finnst foreldrunum rosalega gaman og þeir mæta aftur á næsta leik," segir Aðalsteinn sem er sjálfur aðfluttur úr Hlíðunum þar sem krakkarnir hans æfðu með Val. Honum hafði aldrei dottið í hug að mæta á leik fyrr en dóttir hans átti að leiða leikmenn inn á völlinn. Þá var ekki aftur snúið.
„Það er betra að taka þátt í starfinu og láta breytingar gerast frekar en að standa fyrir utan og tuða um hvað þurfi að gera. Það virkar oft betur."
Samfélag ÍR-inga á Facebook
Aðalsteinn segir að fyrsta vandamálið sem blasti við honum hafi verið að yngri flokkar ÍR æfðu í fimm íþróttahúsum í Breiðholti. Starfið hafi verið sundurslitið en með Facebook-síðu félagsins hafi tekist að búa til samfélag sem tengi krakkana og foreldrana.
„Við virkjum foreldrana í að taka myndir á mótunum. Það eykur umferðina og eykur við umfjöllunina. Krakkarnir merkja sig inn á myndirnar og þannig dreifist þetta. Á svona mótum eru teknar 1.500-2.000 myndir," segir Aðalsteinn sem sjálfur er duglegur að mynda á leikjum meistaraflokks.
„Þá tökum við 200-600 myndir. Við erum með tvær myndavélar á ólíkum stöðum sem eru stilltar á sama tíma. Myndirnar eru svo teknar saman í eina möppu í tímaröð og þannig getum við stundum séð mismunandi sjónarhorn af brotum," segir Aðalsteinn en umferð á síðuna er mikil.
„Þegar meistaraflokkur var deildarmeistari í 1. deild í vor fengum við 12 þúsund heimsóknir á Facebook-síðuna. Helgina á eftir fór 7. flokkur karla og kvenna að keppa á Selfossi og þá fengum við 17 þúsund heimsóknir."
Aðsókn á heimaleiki ÍR:
29.09.2012 ÍR - Haukar 550
11.10.2012 ÍR - FH 500
08.11.2012 ÍR - HK 550
15.11.2012 ÍR - Afturelding 600
28.11.2012 ÍR - Akureyri 380
13.12.2012 ÍR - Fram 458
Aldrei upplifað svona stemmningu

„Þegar ég var í samningaviðræðum við ÍR þá töluðu þeir á þessum nótum. Menn eiga oft til að færa í stílinn en það reyndist ekki vera. Þetta kom skemmtilega á óvart," segir Jón Heiðar um stemmninguna í kringum meistaraflokk félagsins.
„Ég hef spilað fyrir nokkur félög á Íslandi en aldrei áður séð aðra eins umgjörð og stemmningu. Þetta er í sérflokki," segir Jón Heiðar sem dáist greinilega að því starfi sem unnið er af sjálfboðaliðum hjá félaginu.
„Ég hef aldrei séð annað eins skipurit og skipulag. Ábyrgðin dreifist á svo marga en lendir ekki á einum og tveimur eins og gerist oft í íþróttafélögum.
Stöðugildin 31 fyrir hvern heimaleik1. Ábyrgðarmaður leikja
2. Umsjón með fjölmiðlum
3. Veitingar fyrir fjölmiðla
4. Ritari/leikskýrsla/Borð/Merkja klefa
5. Tímavörður
6. Moppa hægra megin
7. Moppa vinstra megin
8. Moppa á bikar-/úrslitaleikjum
9. Moppa á bikar-/úrslitaleikjum
10. Kynnir
11. Plötusnúður
12. Öryggisgæsla allra svæða og dómara
13. Öryggisgæsla á Hurð 1
14. Öryggisgæsla á Hurð 2
15. Öryggisgæsla aðkoma liða/sjónvarp
16. Öryggisgæsla hjá stuðningsmönnum ÍR
17. Öryggisgæsla hjá gestaliði
18. Öryggisgæsla í stúku á stærri leikjum
19. Öryggisgæsla á bikar-/úrslitaleikjum
20. Umsjón með inngöngu yngri flokka
21. Afgreiðsla peninga í Lúgu 1
22. Afgreiðsla korta í Lúgu 2
23. Dyravörður
24. Dyravörður
25. Afgreiðsla í sjoppu
26. Afgreiðsla í sjoppu
27. Öryggisgæsla fjölmiðla
28. Öryggisgæsla áhorfenda á svölum
29. Afgreiðsla aðgöngukorta HSÍ og gestalista
30. Umsjón með kaffi fyrir Bláu Höndina
31. Prófun netkerfis fyrir leikdag