Teitur sýknaður - Gunnlaugi gert að greiða honum 1,5 milljónir 19. september 2012 11:34
Bloggarinn Teitur Atlason var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu af bótakröfu Gunnlaugs M. Sigmundssonar og eiginkonu hans, sem höfðu stefnt honum vegna ummæla Teits á bloggsíðu sinni. Kröfu um ógildingu ummæla var vísað frá dómi. Gunnlaugur og eiginkona hans stefndu Teiti fyrir meiðyrði vegna bloggfærslna sem birtist á dv.is á síðasta ári. Gunnlaugur og eiginkona hans þurfa að greiða Teiti eina og hálfa milljón í málskostnað. Skrifin byggðust að stærstu leyti á umfjöllun Agnesar Bragadóttir í Morgunblaðinu árið 1998 um Kögunamálið, þar sem Gunnlaugur var sagður hafa hagnýtt sér upplýsingar sem hann bjó yfir sem framkvæmdastjóri Kögunar.Sigríður Rut Júlíusdóttir verjandi Teits.Við aðalmeðferð málsins sagðist Gunnlaugur aldrei hafa sölsað undir sig Kögun, eins og Teitur hafi gefið í skyn. Þá hefði skrifin dregið úr trúverðugleika hans sem viðskiptamanns. Teitur sagði við aðalmeðferðina að honum fyndist umfjöllun um Kögun eiga fullt erindi í þjóðfélagsumræðuna á umbrotatímum líkt og í dag. Ástæða þess að hann skrifaði upphaflega um það var að sonur Gunnlaugs, Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins, ræddi um þá sem vildu semja um Icesave sem elítu, en Teitur hefði sjálfur alltaf litið á Sigmund sem hluta af elítunni. Hvorki Gunnlaugur né Teitur voru viðstaddir dómsuppsögu í dag.
Tengdar fréttir Myndlíkingin þótti ekki refsiverð aðdróttun Myndlíking sem Teitur Atlason greip til þegar hann bloggaði um Gunnlaug Sigmundsson þótti ekki refsiverð aðdróttun að mati Héraðsdóms Reykjavíkur. Teitur líkti Gunnlaugi við mann sem ber á náungum sínum með hamri. 19. september 2012 12:24 Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira
Myndlíkingin þótti ekki refsiverð aðdróttun Myndlíking sem Teitur Atlason greip til þegar hann bloggaði um Gunnlaug Sigmundsson þótti ekki refsiverð aðdróttun að mati Héraðsdóms Reykjavíkur. Teitur líkti Gunnlaugi við mann sem ber á náungum sínum með hamri. 19. september 2012 12:24