Menning

Páll Baldvin ekki áfram í Kiljunni

BBI skrifar
Egill Helgason gluggar í Don Kíkóta.
Egill Helgason gluggar í Don Kíkóta. Mynd/Pjetur
Bókmenntaþáttur Egils Helgasonar, Kiljan, fer í loftið innan skamms á RÚV. Persónur og leikendur verða þó aðrir en verið hefur.

Egill sagði frá því á heimasíðu sinni í dag að Páll Baldvin Baldvinsson kveður skjáinn eftir fjögurra ára þjónustu. „Auðvitað er söknuður í honum," segir Egill. Kolbrún Bergþórsdóttir verður hins vegar áfram.

Egill býður hins vegar fimm ný andlit velkomin á skjáinn. Það verða þau Eiríkur Guðmundsson, Fríða Björk Ingvarsdóttir, Friðrika Benónýs, Þröstur Helgason og Sigurður G. Valgeirsson. Þau munu skiptast á að velta vöngum yfir bókum í sjónvarpssal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.