Golf

Tiger byrjaði vel á Pebble Beach | Spilar með Tony Romo

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods og Tony Romo, einbeittir á svip.
Tiger Woods og Tony Romo, einbeittir á svip. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods hóf keppnistímabilið á nýju ári nokkuð vel en hann skilaði sér í hús á 68 höggum á fyrsta PGA-móti ársins sem fer fram í Pebble Beach um helgina.

Tiger náði sex fuglum í gær og var á samtals fjórum höggum undir pari. Hann var vel studdur af fjölmörgum áhorfendum en þetta mót er sérstakt af því leyti að þekktir einstaklingar fá að spila með atvinnukylfingunum.

Mótið er fyrst og fremst einstaklingskeppni atvinnukylfinganna en einnig liðakeppni þar sem atvinnukylfingar og áhugamenn eru saman í liði. Tiger var í liði með Tony Romo, leikstjóranda Dallas Cowboys í NFL-deildinni.

Þetta er í fyrsta sinn í áratug sem hann tekur þátt í mótinu en tvö ár eru liðin síðan hann vann síðast mót á PGA-mótaröðinni. Hann spilaði vel í gær og þó svo að hann sé fimm höggum á eftir efstu mönnum var hann sáttur við sitt.

„Mér gekk mjög vel að slá upphafshöggin en mér gekk heldur verr með járnin. Ég þarf að vinna betur í því. Ég skildi nokkur pútt eftir og hefði getað gert betur með fleygjárnin," sagði hann.

Danny Lee frá Nýja-Sjálandi og Charlie Wi frá Suður-Kóreru eru jafnir og efstir í efsta sæti á níu höggum undir pari. Spilað er á þremur mismunandi völlum á mótinu - Pebble Beach, Spyglass og Monterey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×