Menning

Uppnám í Þjóðleikhúsinu

Pörupiltar eru leiknir af Sólveigu Guðmundsdóttur, Alexíu Björgu Jóhannesdóttur og Maríu Pálsdóttur.
Pörupiltar eru leiknir af Sólveigu Guðmundsdóttur, Alexíu Björgu Jóhannesdóttur og Maríu Pálsdóttur.
Sýningum á Uppnámi, uppistandssýningu sem sýnd hefur verið við góðan orðstír í Þjóðleikhúskjallaranum lýkur með pompi og prakt á stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun, föstudag.

„Við ætluðum okkur upphaflega að sýna fimm sýningar en þær eru orðnar þrettán. Sýningin á laugardag er sú allra síðasta og þá verðum við á stóra sviðinu sem er frábær endir og óvæntur," segir Arna Ýr Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar.

Uppnámið hefst á framlagi Pörupilta, þeirra Dóra Maack, Nonna Bö og Hermanns Gunnarssonar. Þeir eru harðir í horn að taka en engu að síður óhræddir við að takast á við stórar spurningar um ástir og örlög og tilgang lífsins. Viggó og Víóletta taka við eftir hlé og beina söngleikjasjónum sínum að útlendingahatri, kynþáttafordómum og hómófóbíu og fleiru krúttlegu sem best er að sópa undir teppið. Svo syngja þau og brosa út í eitt.

Það eru þau Bjarni Snæbjörnsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir sem leika Viggó og Víólettu, en hlutverk Pörupilta er í höndum Sólveigar Guðmundsdóttur, Alexíu Bjargar Jóhannesdóttur og Maríu Pálsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.