Menning

Feluverk Rowling ófáanlegt á Íslandi

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Ófáanleg Nýjasta bók J.K. Rowling, the Cuckoo´s Calling, er væntanleg í Eymundsson í næstu viku.
Ófáanleg Nýjasta bók J.K. Rowling, the Cuckoo´s Calling, er væntanleg í Eymundsson í næstu viku.
Fátt hefur vakið meiri athygli í bókmenntaheiminum á árinu en sú uppljóstrun að J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, sé höfundur spennusögunnar The Cuckoo"s Calling sem gefin var út undir dulnefninu Robert Galbraith. Bókin hefur rokið upp alla sölulista í hinum enskumælandi heimi, en Íslendingar þurfa að bíða fram í næstu viku eftir að koma höndum yfir bókina í hérlendum bókabúðum.



„Við pöntum nánast aldrei innbundnar glæpasögur,“ segir Jóhannes Dagsson, umsjónarmaður erlendra bóka í Eymundsson Austurstræti. „En við gerðum undantekningu í þessu tilfelli og bókin ætti að verða komin til okkar í næstu viku. Það hafa nokkrir spurt eftir henni hérna, en enginn hefur þó viljað láta sérpanta hana fyrir sig.“



Hjá Máli og menningu fengust þær upplýsingar að ekki stæði til að panta bókina fyrr en hún kæmi út í kiljuútgáfu. „Það tekur því ekki að panta hana innbundna þegar hún er rétt ókomin í kilju,“ segir Eysteinn Traustason sem sér um innkaup á erlendum bókum fyrir BMM. „Það hefur reyndar lítið verið spurt um hana hjá okkur, enda geta þeir sem ekki vilja bíða annað hvort keypt bókina sem rafbók eða pantað hana á Amazon, það tekur ekki nema fimm daga.“ Eysteinn segist þó að sjálfsögðu munu panta eintök af The Cuckoo"s Calling þegar hún verði komin í kiljuformið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×