Körfubolti

Jakob fékk ekki sigur í afmælisgjöf

Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson.
Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins jöfnuðu í kvöld metin gegn Sundsvall Dragons í undanúrslitum sænska körfuboltans.

Norrköping vann þá á heimavelli, 77-66, og staðan í rimmu liðanna er því 1-1. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitarimmuna.

Afmælisbarnið Jakob Örn Sigurðarson, sem varð 31 árs í dag, var stigahæstur hjá Sundsvall með 20 stig. Hann gaf einnig 5 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson hafði óvenju hægt um sig í sóknarleiknum og skoraði aðeins 3 stig. Hann tók þó 11 fráköst.

Pavel skoraði 4 stig, tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×