Körfubolti

Hlynur og Jakob höfðu betur gegn Pavel

Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann fyrstu rimmuna, 74-72, gegn Norrköping Dolphins í undanúrslitum sænska körfuboltans í kvöld.

Dragons leiddi í hálfleik, 46-36, en Höfrungarnir komu til baka í síðari hálfleik og náðu forystunni. Mikil spenna var undir lokin en Drekarnir kláruðu dæmið.

Þeir leiða einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitarimmuna.

Hlynur Bæringsson fór mikinn í liði Sundsvall. Skoraði 16 stig, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 12 stig.

Pavel Ermolinskij átti fínan leik fyrir Norrköping en hann skoraði 11 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×