Lífið

Bieber tárast í nýrri stiklu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stikla fyrir myndina Believe var afhjúpuð fyrir stuttu en um er að ræða heimildarmynd um poppprinsinn umdeilda Justin Bieber.

Hægt er að horfa á stikluna hér fyrir neðan en þar sést Justin meðal annars tárast. Tjáir hann sig einlægt um líf sitt en hann hefur komist í heimspressuna fyrir ýmislegt og ekki allt gott.

Þrjú ár eru síðan fyrsta mynd Justins, Never Say Never, var sýnd en Believe verður frumsýnd vestan hafs á jóladag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.