Menning

Dekkri hliðar handboltamanns

Vigfús Þormar Gunnarsson. Mynd/GVA
Vigfús Þormar Gunnarsson. Mynd/GVA
Stuttmyndin Handbolti verður frumsýnd í Bíó Paradís í dag. Mundi Vondi leikstýrir myndinni og skrifaði hann einnig handrit hennar ásamt Vigfúsi Þormari Gunnarssyni. Með aðalhlutverk fara Vigfús Þormar, Þorsteinn Bachman, Walter Geir Grímsson, Frosti Gnarr og Kristín Lea.

Myndin fjallar á súrrealískan hátt um handboltamann sem er sérlega fær í sinni íþrótt en á sér myrkari hliðar. Vigfús Þormar fer með hlutverk handboltamannsins og fer létt með enda hefur hann iðkað íþróttina frá sjö ára aldri og á að baki nokkra Íslandsmeistaratitla. „Ég hætti í handboltanum þegar ég byrjaði í Kvikmyndaskólanum. Hugmyndin að myndinni er samt frá Munda, hann hafði ekki hugmynd um að ég væri íþróttamaður," segir Vigfús Þormar.

Handbolti er fyrsta mynd Vigfúsar Þormars, en áður hafði hann leikið í nokkrum minni verkefnum. Hann segir tökur hafa gengið hratt og vel fyrir sig og þakkar góðum samstarfsfélögum fyrir það.

Sýningin hefst klukkan 17 í Bíó Paradís og er öllum velkomið að sækja hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.