Tíska og hönnun

Dóttir Gallaghers ryður sér rúms í tískuheiminum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Anais Gallagher, 13 ára dóttir Oasis rokkarans Noel Gallaghers, ætlar sér greinilega að baða sig í sviðsljósinu eins og pabbi sinn. Vettvangur frægðarinnar er þó annar, en hún lét taka eftir sér þegar hún mætti á tískusýningu hjá Moschino Cheap and Chick í London í gær. Anais klæddist ljósbláum náttfötum sem vöktu mikla lukku meðal tískuspekúlanta og var með hjartalaga sólgleraugu við. Anais skrifaði einnig undir samning við módelskrifstofuna Select á dögunum, svo tískudrósin unga verður að öllum líkindum áberandi á næstu árum.

Innan tískuheimsins á maður aldrei að segja aldrei, náttföt eru greinilega það sem koma skal.
Á fremsta bekk með vinkonum sínum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×