Körfubolti

Ágætur leikur hjá Herði Axel

Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik.
Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði tíu stig fyrir Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið tapaði þá, 84-68, fyrir Iberostar Tenerife.

Hörður spilaði í rúmar 22 mínútur í leiknum. Hann setti niður bæði tveggja stiga skotin sín og öll þrjú vítaskotin sem hann fékk. Einn þristur af þremur fór niður.

Valladolid er á botni deildarinnar sem fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×