Erlent

Þrír af sakborningunum í Delí neita sök

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Blóm og kerti lögð til minningar um konuna.
Blóm og kerti lögð til minningar um konuna. Mynd/ AFP.
Þrír af fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa rænt, nauðgað og myrt 23 ára gamla konu í Delí á Indlandi munu neita sök. Þetta segir Manohar Lal Sharma, verjandi mannanna, í samtali við BBC fréttastofuna. Hann segir að mennirnir, sem heita Mukesh Singh, Akshay Thakur og Ram Singh, eigi rétt á sanngjörnum réttarhöldum.

Allir mennirnir fimm voru leiddir fyrir dómara í gær og réttarhöld halda áfram á fimmtudag. Sjötti grunaði maðurinn er einungis sautján ára gamall. Réttað verður yfir honum fyrir unglingadómstól. Verði mennirnir sakfelldir munu þeir hugsanlega hljóta dauðarefsingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×