Menning

Gera súrrealíska handboltamynd

Vigfús Þormar Gunnarsson leikur í myndinni ásamt Þorsteini Bachman og fleirum.
Vigfús Þormar Gunnarsson leikur í myndinni ásamt Þorsteini Bachman og fleirum.
Fatahönnuðurinn Guðmundur Hallgrímsson, eða Mundi Vondi eins og hann er kallaður, og leikarinn og fyrrverandi handboltakappinn Vigfús Þormar Gunnarsson stefna á að frumsýna nýja stuttmynd næstu helgi.

Myndin er raunar nokkuð athyglisverð fyrir þær sakir að hér nálgast listamennirnir óopinbera þjóðaríþrótta Íslendinga, handboltann, út frá súrrealískum forsendum.

"Þetta er súrrealísk handboltamynd og fannst okkur sérstaklega spennandi hugmynd að blanda list og íþróttum saman því að á þeim tíma sem myndin var gerð voru íþróttafólk að skammast út í listamenn og öfugt, út af listamannalaunum versus styrkjum," segir Vigfús, sem sjálfur spilaði handbolta með Haukum á sínum yngri árum.

Hér er um metnaðarfullt verkefni að ræða en myndin er lokaverkefni Vigfúsar úr Kvikmyndaskólanum þar sem hann lærði leiklist.

Aðrir leikarar eru engir aukvisar. Með önnur hlutverk fara meðal annars Þorsteinn Bachman og Walter Geir Grímsson.

Myndin er fjórða stuttmynd Munda en hann frumsýndi meðal annars myndina Rabbit hole árið 2010. Sú mynd var einnig súrrelísk og fjallaði um för ungrar stúlku sem þurfti að leysa ýmsar þrautir til að komast á þann leiðarenda sem hún óskaði sér.

Hér má svo sjá stiklu úr myndinni.



HANDBOLTI trailer from Mundi Vondi on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×