Körfubolti

Sárt tap hjá Hauki og félögum

Haukur Helgi í landsleik.
Haukur Helgi í landsleik.
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Manresa töpuðu naumlega, 94-90, gegn Lagun Aro GBC í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Manresa er í næstneðsta sæti deildarinnar og þurfti sárlega á sigri að halda. Liðið var inn í leiknum allan tímann en gaf eftir á lokakaflanum.

Haukur Helgi spilaði í 17 mínútur og átti ekki sinn besta leik. Hann tók eitt skot utan af velli sem fór ekki niður. Hann klúðraði einnig þrem vítaskotum en tók tvö fráköst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×