Körfubolti

Íslendingaliðin byrja vel í úrslitakeppninni í Svíþjóð

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. mynd/valli
Íslendingaliðin Sundsvall Dragons og Norrköping Dolphins fóru vel af stað þegar úrslitakeppnin í sænsku úrvalsdeildinni hófst.

Sundsvall vann afar öruggan sigur, 91-76, á 08 Stockholm HR. Sundsvall með öruggt forskot allan leikinn.

Jaköb Örn Sigurðarson skoraði 17 stig fyrir Sundsvall og gaf 4 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson skoraði 15 stig fyrir liðið og tók 6 fráköst.

Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins lentu í vandræðum með Borås en hristu þá af sér undir lokin og unnu sigur, 94-85.

Pavel skoraði 1 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Þetta voru fyrstu leikirnir í átta liða úrslitum en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×