Tíska og hönnun

Þybbni lúðinn sem varð heimsfrægur hönnuður

Fatahönnuðurinn Marc Jacobs hefur sjaldan litið betur út en þegar hann fagnaði fimmtíu ára afmæli sínu í Rio de Janeiro í Brasilíu um helgina.

Það er ótrúlegt að hugsa til þess hvernig hann leit út í byrjun ferilsins.

Á ströndinni í Rio de Janeiro.
Marc var nefnilega ekki alltaf svona heilsuhraustur né smart. Hann var þvert á móti frekar þybbinn, með úfið hár og hugsaði ekki mikið um fötin sem hann klæddist.

Með kærastanum, Harry Louis.
"Ég hugsaði ekkert um útlitið. Það skipti mig engu máli," lét Marc hafa eftir sér í viðtali við Harper's Bazaar fyrir stuttu. Árið 2006 breytti hann um lífsstíl.

Ótrúleg breyting á einum manni.
"Líkamsfita mín var tuttugu prósent. Mér fannst frábært þegar ég komst niður í fimm prósent og varð vöðvastæltur," segir Marc og bætir við að hann hafi lifað á skyndibita þegar hann var sem mjúkastur.

Frískleiki.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×