Lífið

Hataðasta manneskjan í Hollywood

Leikkonan Gwyneth Paltrow hlýtur þann vafasama heiður að vera hataðasta manneskjan í Hollywood í tímaritinu Star.

Star gerir árlega könnun til að sjá hvaða manneskja í kvikmyndum, tónlist og sjónvarpi fer mest í taugarnar á almúganum.

Gwyneth er ekki vel liðin.
Í ár er það Gwyneth sem trónir á toppnum en í öðru sæti er Twilight-stjarnan Kristen Stewart. Þriðja sætið vermir Jennifer Lopez og í fjórða er tónlistarmaðurinn John Mayer. Í fimmta sæti er síðan leikkonan Katherine Heigl.

Kristen fer í taugarnar á mörgum.
Aðrir á topp 20 eru til dæmis Justin Bieber, Kim Kardashian, Angelina Jolie og Ashton Kutcher.

Jennifer Lopez stuðar fólk.
John Mayer er eini karlmaðurinn á topp 5.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.