Menning

Ofurmennið í nýrri stiklu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Nýtt sýnishorn úr myndinni Man of Steel var birt í gær og þykir hið glæsilegasta.

Myndin er sú nýjasta um Ofurmennið og það er leikarinn Henry Cavill sem fer með hlutverkið. Í leikstjórastólnum situr Zack Snyder, en hann hefur áður leikstýrt myndum á borð við 300 og Sucker Punch.

Í öðrum hlutverkum eru Laurence Fishburne, Russel Crowe, Amy Adams, Kevin Costner og Diane Lane.

Miklar vonir eru bundnar við Man of Steel, og vonast aðdáendur ofurhetjunnar til þess að hún bæti þeim vonbrigði myndarinnar Superman Returns, sem gerð var árið 2006.

Myndin kemur í kvikmyndahús í júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.