Menning

Íslandi bregður fyrir í fyrsta sýnishorni úr Thor: The Dark World

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Marvel frumsýndi í gær fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Thor: The Dark World sem frumsýnd verður hér á landi í nóvember.

Alan Taylor hefur tekið við af Shakespeare-sjarmörnum Kenneth Branagh í leikstjórasætinu en þau Chris Hemsworth og Natalie Portman endurtaka hlutverk sín úr fyrri myndinni.

Hluti myndarinnar var tekinn á Íslandi í fyrra og sést glitta í kunnuglegt landslag í stiklunni, sem sjá má í spilaranum hér að ofan.

Chris Hemsworth er vígalegur sem fyrr í hlutverki sínu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.