Enski boltinn

Svipmyndir frá litríkum ferli Ferguson

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sir Alex Ferguson lætur af störfum sem knattspyrnustjóri Manchester United í lok leiktíðar eftir einstakan feril.

Ferguson tók við liði Manchester United árið 1986. Áður hafði hann stýrt St. Mirren og Aberdeen í Skotlandi þar sem hann er fæddur. Hann gerði Aberdeen þrívegis að skoskum meisturum en sigur í Evrópukeppni bikarhafa árið 1983 stóð upp úr.

Ferguson tók við landsliði Skota fyrir heimsmeistaramótið 1986 vegna skyndilegs andláts Jock Stein. Ferguson var meðal annars boðið stjórastarfið hjá Tottenham áður en Manchester United kom inn í myndina.

Ron Atkinson var rekinn vegna dapurs árangurs í nóvember 1986 og Skotinn ákveðni var fenginn í hans stað. Þrjú og hálft ár liðu þar til fyrsti bikarinn kom loksins í hús. Þá lagði United lið Crystal Palace í endurteknum bikarúrslitaleik á Wembley. Stíflan var brostin.

Sigur í Evrópukeppni bikarhafa kom ári síðar, svo sigur í enska deildabikarnum og loksins, vorið 1993, kom fyrsti Englandsmeistaratitillinn í hús eftir 26 ára þurrkatíð. Síðan hefur United orðið meistari 13 sinnum og 20 sinnum alls.

Stjórinn fór alltaf sínar eigin leiðir og ef leikmenn fóru yfir strikið að mati Skotans þurftu þeir að yfirgefa félagið. Þannig yfirgáfu Roy Keane, Jaap Stam og fleiri herbúðir United eftir ósætti við stjórann. Þrátt fyrir að lykilmenn hyrfu á braut tókst honum alltaf að byggja upp nýtt lið og titlarnir héldu áfram að streyma inn.

Hér að ofan má sjá fjölmargar myndir frá litríkum ferli Skotans.

Sportið á Vísi er komið á Facebook. Fylgstu með.

Sir Alex með Evrópumeistaratitilinn í Mosvku árið 2008.Nordicphotos/Getty
Fred the Red, stuðningsmannadýr Rauðu djöflanna, ræðir við Sir Alex.Nordicphotos/Getty
Sir Alex og Sir Bobby Charlton fara yfir málin á Carrington æfingasvæðinu.Nordicphotos/Getty
Með Evrópumeistararitilinn sem vannst á elleftu stundu í Barcelona 1999.Nordicphotos/Getty
Sir Alex fagnar sem stjóri Aberdeen.Nordicphotos/Getty
Sir Alex, Mark Hughes og Sir Bobby Charlton með Englandsmeistaratitilinn langþráða árið 1993.Nordicphotos/Getty
Með löndum sínum Gordon Strachan og Jim Leighton.Nordicphotos/Getty
Sigri fagnað í Evrópukeppni bikarhafa í Rotterdam 1991.Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty
Nordicphotos/Getty

Tengdar fréttir

Hver tekur við af Ferguson?

Þar sem Sir Alex Ferguson ætlar að stíga niður úr brúnni hjá Man. Utd eru menn eðlilega byrjaðir að velta því fyrir sér hver muni taka að sér hið erfiða hlutverk að fylla skarð Ferguson sem er að margra mati ómögulegt verkefni.

Sir Alex kveður United

Manchester United hefur staðfest að knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson muni láta af störfum í lok leiktíðar eftir 26 ára starf hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×