Fótbolti

Sara Björk skoraði og Þóra hélt hreinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Malmö.
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Malmö. Heimasíða LdB Malmö

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka LdB Malmö sem vann öruggan 4-0 heimasigur á Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Heimakonur leiddu 2-0 í hálfleik og Sara Björk kom liðinu í 3-0 með marki snemma í hálfleiknum. Miðjumanninum snjalla var svo skipt af velli tólf mínútum fyrir leikslok.

Malmö situr í toppsæti deildarinnar eftir sigurinn með 17 stig úr sjö leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×