Innlent

Þóttist vera tveir menn í sam­skiptum við tölvu­verslun

Allt í allt telur Sigurður Þór að skaði hans sé um sjö hundruð þúsund krónur. "Það virðist kannski ekki mikið, en þetta er lítið fyrirtæki og kemur okkur mjög illa,“ segir Sigurður.
Allt í allt telur Sigurður Þór að skaði hans sé um sjö hundruð þúsund krónur. "Það virðist kannski ekki mikið, en þetta er lítið fyrirtæki og kemur okkur mjög illa,“ segir Sigurður.

„Ég var alltaf varkár,“ segir Sigurður Þór Helgason, eigandi iStore á Íslandi en hann er einn af mörgum sem Sigurður Ingi Þórðarson, stundum kallaður Siggi Hakkari, á að hafa svikið fé út úr. Meðal annars á að hann að hafa svikið nokkra iPhone síma út úr fyrirtækinu og fleiri vörur í mars síðastliðnum.

Siggi hakkari situr í vikulöngu gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa svikið tíu milljónir út úr fjölmörgum aðilum. Það á hann að hafa gert með því að hafa sölsað undir sig bókaforlag og notast við prókúruumboð félagsins til þess að svíkja fé út úr fyrirtækjum.

Sigurður Þór segist alltaf haft grunsemdir gagnvart Sigurði um að ekki væri allt með felldu. Hann segir að Siggi hafi þóst vera tveir menn í samskiptum við sig, annars vegar fyrrverandi eigandi bókaforlagsins, og svo starfsmaður þess.

Vegna tortryggni Sigurðar Þórs greiddi Siggi hakkari fyrstu tvo reikningana. Þá fyrst leyfði Sigurður Þór honum að komast í reikningsviðskipti.

„Svo fannst mér skrýtið hvað hann keypti,“ segir Sigurður Þór, en að hans sögn á Siggi hakkari að hafa keypt meðal annars fjóra iPhone síma, „og svo keypti hann hljóðkerfi líka,“ bætir hann við. Honum fannst það undarlegt, enda erfitt að sjá hversvegna bókaútgáfa þarf á veglegu hljóðkerfi að halda.

Sigurður Þór segir að lögreglan hafi haft samband við sig fyrst í gær. Þá vegna þess að það var búið að framkvæma húsleit heima hjá Sigga hakkara og þar fundust vörur úr verslun Sigurðar Þórs.

Allt í allt telur Sigurður Þór að skaði hans sé um sjö hundruð þúsund krónur. „Það virðist kannski ekki mikið, en þetta er lítið fyrirtæki og kemur okkur mjög illa,“ segir Sigurður.

Sama tilfinning sækir að honum og svo mörgum sem hafa orðið fyrir barðinu á fjársvikum, „manni finnst þetta klaufalegt,“ segir hann í samtali við fréttastofu.

Hann segir að nú fái engin fyrirtæki að vera í reikningsviðskiptum nema að vel athuguðu máli, „allavega ekki þessi sem maður kannast ekkert við,“ segir hann að lokum.


Tengdar fréttir

Grunaður að minnsta kosti um tíu milljón króna fjársvik

Sigurður Ingi Þórðarson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir stórfelld fjársvik. Meðal annars á hann að hafa þóst vera bókaútgefandi auk þess sem uppljóstrunasamtökin WikiLeaks hafa kært hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×