Golf

Mickelson og Horschel deila forystusætinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Phil Mickelson
Phil Mickelson Nordicphotos/Getty
Bandaríkjamennirnir Phil Mickelson og Billy Horschel hafa eins höggs forystu á næstu menn að loknum öðrum degi á bandaríska meistaramótinu í golfi.

Ekki tókst að ljúka leik á öðrum hringnum í gær sem má rekja til frestunar á fyrsta degi mótsins. Nokkrir kylfingar þurftu að hætta leik vegna myrkurs og fara fyrr af stað fyrir vikið í dag.

Mickelson, sem setti niður langt pútt á 18. holu, spilaði hring gærdagsins á 72 höggum eða tveimur yfir pari. Horschel var hins vegar í banastuði, fór hringinn á þremur undir pari, og landarnir því báðir á einu höggi undir pari.

Englendingurinn Luke Donald situr í þriðja sæti ásamt tveimur löndum sínum þeim Ian Poulter og Justin Rose. Allir eru á parinu líkt og Bandaríkjamaðurinn Steve Stricker og áhugakylfingurinn Pan Cheng-Tsung frá Taívan.

Tiger Woods og Rory McIlroy eru báðir á þremur höggum yfir pari og enn með í baráttunni. Flest bendir til þess að þeir kylfingar sem spili á átta höggum yfir pari eða betur komist í gegnum niðurskurðinn.

Stöðuna í mótinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×