Thiago keyptur eða enginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júlí 2013 11:30 Thiago og Pep Guardiola. Nordicphotos/getty
Bayern München er komið í kapphlaup við Manchester United um spænska miðjumanninn Thiago Alcantara. Pep Guardiola, þjálfari Bæjara, vill þann spænska til Þýskalands. „Ég vil Thiago Alcantara. Ég hef beðið forráðamenn Bayern um að kaupa hann. Við sjáum hvað setur," sagði Guardiola á blaðamannafundi. Englandsmeistarar Manchester United virtust hafa vænt forskot í kapphlaupinu um Thiago sem vill komast burt frá Barcelona. Þar hafa tækifæri hans í byrjunarliðinu verið af skornum skammti. „Ég þekki hann mjög vel," sagði Guardiola sem þjálfaði Thiago á sínum tíma hjá Barcelona. „Thiago er eini leikmaðurinn sem ég vil, það er það sem ég sagði þeim (forráðamönnum Bayern). Annaðhvort kaupum við hann eða engan," sagði Guardiola. Fróðlegt verður að sjá hvernig Guardiola hyggst nýta Thiago enda eru fá lið jafnvel skipuð í Evrópu þegar kemur að miðjunni en Evrópumeistararnir frá München. Töluverðar líkur verður að telja að Thiago velji Bayern fram yfir United. Ekki síst ef haft er í huga að umboðsmaður Thiago er enginn annar en Pere Guardiola, bróðir Pep.
Þýski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Fleiri fréttir „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Sjá meira