Fótbolti

Guðmundur og Matthías léku í tapleik Start

Guðmundur Kristjánsson var allan tímann í byrjunarliði Start þegar liðið tapaði 1-2 fyrir Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Matthías Vilhjálmsson var á varamannabekk liðsins en kom inná á 80.mínútu en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.

Start hefur gengið brösulega á leiktíðinni en liðið er í fjórtánda sæti af sextán liðum, einu stigi fyrir ofan fallsætið. Haugesund er eftir sigur dagsins í fimmta sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×