Lífið

Fagna nýrri matreiðslubók metsöluhöfundar

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Eymundsson á Skólavörðustíg í gær þegar útgáfu matreiðslubókarinnar Nýir heilsuréttir fjölskyldunnar var fagnað. Bókin sem er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Heilsuréttir fjölskyldunnar sem er ein vinsælasta matreiðslubók sem gefin hefur verið út hér á landi en hún hefur nú selt í yfir 13 þúsund eintökum.

Höfundurinn Berglind Sigmarsdóttur heldur áfram í þessari nýju bók á sinn einstaka hátt að fjalla um heilsu og matargerð og hvernig hægt er að aðlaga uppáhaldsrétti fjölskyldunnar að hollara og næringarríkara mataræði.

Berglind gefur ráð um hvernig hægt er að draga úr sykurneyslu unga fólksins og temja sér heilsusamlegra mataræði og lífsstíl.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða myndalbúmið.

Unnur SIgurjónsdóttir og Ragnhildur Sveinsdóttir.
Solla Eiríks og og Eydís Guðmundsdóttir.
Ágústa Johnson og börn.
Margrét Haraldsdóttir og Valdís Arnardóttir.
Berglind og Rósa Guðbjartsdóttir.
Berglind og eiginmaður hennar Sigurður Gíslason matreiðslumeistari.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.