Menning

Tilnefnd til ljósvakaverðlauna

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Hrafnhildur Hagalín og Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Hrafnhildur Hagalín og Elísabet Indra Ragnarsdóttir Mynd/úr safni
Tvö útvarpsverk Rásar 1 eru tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna Prix Europa 2013.

Uppfærsla Útvarpsleikhússins á leikriti Hrafnhildar Hagalín, Opið hús, í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur er tilnefnt sem besta dramatíska útvarpsverk Evrópu í flokki stakra leikrita.

Opið hús hlaut í sumar íslensku sviðslistaverðlaunin, Grímuna og Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin sem besta dramatíska útvarpsverk ársins.

Útvarpsþáttur Elísabetar Indru Ragnarsdóttur, Þruma, elding og lífsástin sjálf, er tilnefndur sem besti tónlistarþáttur í útvarpi í Evrópu. Þátturinn fjallar um tónlistarsmiðju Bjarkar Guðmundsdóttur, Biophiliu.

Viðar Eggertsson, verkefnastjóri leiklistar í Ríkisútvarpinu, segir að það þyki nokkuð merkilegt hvað hið litla Útvarpsleikhús Ríkisútvarpsins er öflugt.

„Útvarpsleikhúsið hefur fengið Norrænu útvarpsleikhússverðlaunin þrisvar sinnum síðustu sex ár. Útvarpsleikhúsdeildin hér er mun minni en gengur og gerist í öðrum löndum eins og Danmörku, Svíþjóð og Noregi,“ segir Viðar.

Viðar Eggertsson, verkefnastjóri leiklistar í RíkisútvarpinuMynd/RGB
Viðar segir að besti árangur sem náðst hefur í keppninni sé þegar Djúpið var í þriðja sæti sem besta útvarpsverk Evrópu árið 2011 og skákaði þá virðulegum stöðvum eins og BBC.

„Síðustu ár hefur Útvarpsleikhúsið verið tilnefnt nær árlega en þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem útvarpsþáttur er tilnefndur og það í nýjum flokki, flokki tónlistarþátta,“ segir Viðar.

Verðlaunahátíðin PRIX EUROPA er haldin árlega í Berlín. Þar er stefnt saman til keppni besta efni ljósvakamiðla Evrópu.

Gert er ráð fyrir að um þúsund dagskrárgerðarmenn muni sækja hátíðina í ár og margir hverjir í fjölskipuðum dómnefndum sem vega og meta hvert verk sem tilnefnt er í hinum ýmsu flokkum, segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×