Lífið

Ráðist á Justin Bieber

Poppprinsinn Justin Bieber komst í hann krappan á föstudagskvöldið þegar ráðist var á hann á næturklúbbi í Toronto.

Atvikið átti sér stað um þrjú um nóttina þegar Justin yfirgaf VIP-svæðið til að blanda geði við aðra á staðnum. Þá réðst maður á hann en öryggisverðir voru fljótir að yfirbuga manninn og henda honum út. Ekki var kallað til lögreglu.

Hasar í Toronto.
Ekki er ljóst af hverju maðurinn fann sig knúinn til að ráðast á poppstjörnuna en atvikið var myndað í bak og fyrir af gestum næturklúbbsins.

Greyið Justin litli.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×