Menning

Ný galdramynd eftir J. R. Rowling

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
J. K. Rowling er frægust fyrir bækur sínar um Harry Potter
J. K. Rowling er frægust fyrir bækur sínar um Harry Potter
Metsöluhöfundurinn J.K. Rowling, sem þekktust er fyrir bækur sínar um Harry Potter, skrifar nú kvikmyndahandrit eftir bók sinni Frábærar skepnur og leiðin til þeirra (e. Fantastic Beasts and where to find them).

Bókin fjallar um galdraverurnar í ævintýraheimi Harry Potter en ekki um galdradrenginn sjálfan. „Kvikmyndin verður hvorki forsaga eða eftirmáli Harry Potter kvikmyndanna, heldur viðbót við galdraheiminn,“ segir Rowling um nýju myndina.

Hugmyndin að kvikmyndinni kom frá Warner Bros og Rowling fann fljótt að hún vildi sjálf skrifa handritið að kvikmyndinni. "Ég hef lifað svo lengi í skáldsagnaheimi mínum að ég vil vernda hann og koma honum sjálf til áhorfenda," segir Rowling.

Sagan mun hefjast í New York sjötíu árum fyrir upphaf ævintýra Harry Potter og aðalpersónan verður Newt Scamander.

Warner Bros vinnur einnig að gerð sjónvarpsþátta eftir fyrstu og einu skáldsögu Rowling fyrir fullorðna, Hlaupið í skarðið, sem kom út á íslensku á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×