Menning

Íris ný framkvæmdastýra Listar án Landamæra

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Íris Stefanía Skúladóttir tók þátt í List án Landamæra árið 2006 en mun stýra hátíðinni næsta vor.
Íris Stefanía Skúladóttir tók þátt í List án Landamæra árið 2006 en mun stýra hátíðinni næsta vor. Mynd/List án Landamæra
Íris Stefanía Skúladóttir hefur verið ráðin sem ný framkvæmdastýra Listar án Landamæra. Hún hefur stundað nám við viðskiptafræðideild og íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Hún stofnaði og rak Norðurpólinn leikhús og hefur unnið sem bæði verkefnastjóri og framkvæmdastjóri við leiksýningar, hátíðir og listviðburði.

List án landamæra er árleg listahátíð sem leggur áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Hátíðin verður haldin í 11. skipti vorið 2014. Íris tók þátt í List án landamæra árið 2006 í leiklistarveislu í Borgarleikhúsinu og hefur fylgst með hátíðinni allar götur síðan.

Hátíðin er í stöðugri þróun og hefur stækkað að umfangi ár hvert. Viðburðir eru haldnir um allt land í samstarfi við fjölda listafólks og skipuleggjendur. Einnig hefur erlent listafólk og listhópar komið og tekið þátt í hátíðinni að er kemur fram í tilkynningu frá hátíðinni.

List án landamæra er hátíð fjölbreytileikans. Allir sem vilja geta tekið þátt! Á hátíðinni vinnur listafólk saman að allskonar list með frábærri útkomu. Það leiðir til auðugra samfélags og aukins skilnings manna á milli. Hátíðin er vettvangur og þak yfir viðburði og hefur það að markmiði að vera síbreytileg og lifandi. Hátíðin er ekki stofnun heldur grasrótarsamtök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.