Tíska og hönnun

Rick Owens slær í gegn

Fatahönnuðurinn Rick Owens sýndi sumar- og vorlínu sína fyrir árið 2014 á fimmtudag.
Fatahönnuðurinn Rick Owens sýndi sumar- og vorlínu sína fyrir árið 2014 á fimmtudag.
Fatahönnuðurinn Rick Owens sýndi sumar- og vorlínu sína fyrir árið 2014 á tískuvikunni í París á fimmtudag. Sýningin vakti gríðarlega athygli, enda ekki um hefðbundna tískusýningu að ræða.

Owens fékk ekki fyrirsætur til að sýna fatnað sinn, heldur danshópa sem dönsuðu af krafti á sviðinu. Athygli vakti að flestar voru dansararnir dökkir á hörund, en hönnuðir hafa ítrekað verið gagnrýndur fyrir það að ráða helst hvítar fyrirsætur fyrir sýningar á tískuvikunum.

Owens er fæddur í Bandaríkjunum og stundaði hönnunarnám í Los Angeles. Hann vakti fyrst athygli í kjölfar ljósmyndar sem birtist í franska Vogue um aldarmótin. Myndin var af Kate Moss íklæddri leðurjakka frá Owens.

Hönnuðurinn hefur búið og starfað í París frá árinu 2003.

Hér má skoða línuna betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×