Handbolti

Stefán Darri handarbrotnaði

Stefán Darri svekktur.
Stefán Darri svekktur. mynd/fram.is
Hinn ungi og efnilegi leikmaður Fram, Stefán Darri Þórsson, varð fyrir því óláni að meiðast illa í tapleiknum gegn FH í gær.

Atvikið átti sér stað snemma í leiknum. Hann féll þá í gólfið með hendina undir sér. Við það handarbrotnaði hann.

Leikur Fram-liðsins hrundi og liðið var rassskellt í Krikanum.

Stefán Darri verður frá í einhverjar vikur vegna meiðslanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×