Menning

Yngsti vinningshafi Man Booker Prize hingað til

Eleanor Catton
Eleanor Catton AFP/NordicPhotos
Eleanor Catton hlaut bókmenntaverðlaunin Man Booker Prize í gær fyrir bók sína The Luminaries.

Catton er 28 ára gömul sem gerir hana yngsta viðtakanda verðlaunanna frá upphafi. Catton er fædd í Kanada og alin upp í Christchurch í Nýja-Sjálandi.

Booker-verðlaunin svokölluðu eru virtustu bókmenntaverðlaun Breta. Vinningshafi hlýtur fimmtíu þúsund pund fyrir, sem samsvarar tæplega tíu milljónum íslenskra króna.

Þegar verðlaunin voru veitt, og í ljós kom að Catton hlyti þau, virtist hún mjög hissa. Hún hafði orð á því að bók hennar væri martröð hvers útgefanda, þar sem bókin er 848 blaðsíður, og söguþráðurinn í flóknari kantinum.

The Luminaries er þar með einnig lengsta bók til þess að hljóta verðlaunin.

Hún þakkaði útgefendum sínum kærlega fyrir samstarfið og bætti við að það væru ekki öll útgáfufyrirtæki sem næðu þessu jafnvægi; að búa til peninga og að búa til list.

Aðrir tilnefndir voru NoViolet Bulawayo með bókina We Need New Names, sem fjallar um tíu ára stelpu sem ferðast frá Simbabve til Bandaríkjanna; Jim Crace, fyrir bókina Harvest, Ruth Ozeki fyrir A Tale for the Time Being, Jhumpa Lahiri fyrir The Lowland og Colm Toibin fyrir The Testament of Mary.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.