Menning

Reynið að leika þetta eftir

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Vladimir Miller, hinn ofurdjúpraddaði rússneski söngvari, kom hingað til lands fyrir helgi til að syngja tónverkið Vesper með Mótettukór Hallgrímskirkju, sem gerir kröfur um dýpri bassaraddir en almennt þekkjast.

Rödd kappans vakti verðskuldaða athygli og Hugrún í Íslandi í dag fékk hann til að bregða á leik með þremur bassasöngvurum - og þið sem heima sitjið, reynið að taka undir.

Það þarf enginn að skammast sín fyrir að ná ekki tónunum þar sem örfáir geta leikið þá eftir en í heiminum eru fjórir til fimm söngvarar sem geta sungið líkt og Vladimir og þess vegna kemur ekki á óvart að rödd hans er eftirsótt um allan heim, enda eitursvöl og hefur hljómað all mörgum sinnum á hvíta tjaldinu. 

Hægt er að horfa á fleiri myndbönd með Vladimir á YouTube-rás hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×