Körfubolti

Hetjuleg barátta Sundsvall dugði ekki til

Jakob Sigurðarson.
Jakob Sigurðarson.
Laskað lið Sundsvall Dragons stóð í hárinu á toppliði Borås Basket í sænska körfuboltanum í kvöld en varð að játa sig sigrað að lokum, 87-81.

Bæði Hlynur Bæringsson og Ægir Þór Steinarsson voru í leikmannahópi liðsins þó svo þeir hefðu ekki getað spilað. Jakob Sigurðarson skoraði níu stig, tók sjö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Sundsvall.

Sundsvall er í sjötta sæti af tíu liðum deildarinnar og langt frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×