Körfubolti

Kærkominn sigur hjá Sundsvall

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. mynd/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons reif sig upp í sænska körfuboltanum í kvöld er liðið fékk ecoÖrebro í heimsókn.

Sundsvall vann öruggan sigur, 89-67, og var sigurinn kærkominn eftir erfitt gengi upp á síðkastið. Sundsvall glímir við fjárhagsörðugleika, leikmönnum hefur fækkað og svo hafa meiðsli bæst ofan á.

Jaköb Örn Sigurðarson skoraði 17 stig fyrir Sundsvall, tók 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Hlynur Elías Bæringsson skoraði 9 stig og tók 11 fráköst.

Sundsvall er í sjötta sæti deildarinnar eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×