Körfubolti

Stórleikur Jakobs og Hlyns dugði ekki til

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob. mynd/valli
Þrátt fyrir hetjulega baráttu varð Íslendingalið sundsvall Dragons í sænska körfuboltanum að sætta sig við tap, 76-83, á heimavelli gegn Södertalje Kings.

Íslendingarnir áttu stórleik í liði Sundsvall. Hlynur Bæringsson var með tvöfalda tvennu en hann skoraði 18 stig og tók 10 fráköst. Hann gaf þess utan 5 stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 19 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Þessi flotti leikur okkar manna dugði því miður ekki til.

Sundsvall er eftir sem áður í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×