Ribéry var besti knattspyrnumaður Evrópu 2012-13 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2013 17:03 Franck Ribéry. Mynd/NordicPhotos/Getty
53 sérvaldir blaðamenn frá aðildarlöndum UEFA kusu í kvöld um hver er besti knattspyrnumaður Evrópu 2012-13 og fyrir valinu var Frakkinn Franck Ribéry sem var lykilmaður þegar Bayern München vann þrennuna á síðustu leiktíð. Franck Ribéry hjá Bayern Munchen, Lionel Messi hjá Barcelona og Cristiano Ronaldo Real Madrid urðu þeir þrír efstu í kjörinu og það var síðan kosið sérstaklega á milli þeirra í Mónakó í kvöld. Franck Ribéry var með 11 mörk og 16 stoðsendingar í 39 leikjum með Bayern München á síðustu leiktíð og þýska liðið vann 35 af þessum 39 leikjum. Bayern vann Meistaradeildina, þýska meistaratitilinn og þýska bikarinn 2012-13 og Ribéry gerði útslagið í mörgum af mikilvægustu leikjunum. Franck Ribéry lagði meðal annars upp bæði mörk Bayern í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Spánverjinn Andrés Iniesta fékk þessi verðlaun í fyrra og Lionel Messi var kosinn þegar verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn fyrir keppnistímabilið 2010-11. Messi og Cristiano Ronaldo hafa verið á topp þrjú í öll þrjú skiptin. Skapti Hallgrímsson á Morgunblaðinu var fulltrúi Íslands í þessu kjöri.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira