Tíska og hönnun

Stjörnurnar elska Chanel

Karl Lagerfeld ásamt fyrirsætum sínum í lok sýningar.
Karl Lagerfeld ásamt fyrirsætum sínum í lok sýningar. Nordicphotos/getty
Karl Lagerfeld sýndi couture línu Chanel fyrir haustið 2013 á mánudag. Sýningin fór fram í Grand Palais við Champs-Élysées í París og var stjörnum prýdd.

Franska Vogue hreifst mjög af sýningunni og sagði umgjörðina minna á „gamla tíma“ í bland við framtíðina.

Meðal þeirra er sóttu sýninguna voru leikararnir Michael Pitt, Astrid Berges-Frisbey, Rose Byrne, söngkonan Vanessa Paradis og tískuspekingarnir Miroslava Duma, Julia Restoin Roitfeld og Anna Wintour.

 

Hér má sjá myndband frá sýningunni.

Rihanna klæddist peysukjól frá Chanel.nordicphotos/getty
Kristen Stewart skartaði svörtum grifflum við hvítan blaser-jakka.Nordicphotos/getty
Franska leikkonan Clemence Poesy er í miklu uppáhaldi hjá Lagerfeld og sækir flestar sýningar hans.Nordicphotos/getty
Alexa Chung er ávalt smart.Nordicphotos/getty
Leikkonan og fyrirsætan Milla Jovovich var á meðal gesta.Nordicphotos/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.