Menning

Prenta einungis út 69 eintök af hvorri bók

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Tunglið forlag gefur út tvær bækur á sérstöku Tunglkvöldi á Loft Hostel í kvöld klukkan átta. Að venju verða aðeins 69 eintök prentuð af hvorri bók og þau aðeins fáanlega á útgáfukvöldinu sjálfu.

Boðið verður upp á tónlist, upplestur úr verkunum og léttar veitingar.


Að þessu sinni koma út bækurnar Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998-2002) eftir Margréti Bjarnadóttur og Bananasól – ástarsaga eftir Björk Þorgrímsdóttur.

Margrét Bjarnadóttir hefur á síðustu árum getið sér gott orð sem danshöfundur og dansari en Líf mitt, til dæmis er hennar fyrsta bók. Texti bókarinnar er tekinn óbreyttur upp úr dagbókum höfundarins árin 1998-2002.

Björk Þorgrímsdóttir hefur lagt stund á nám í heimspeki og bókmenntum en hún hefur einnig á síðustu misserum látið til sín taka á sviði ljóðlistarinnar. Bananasól – ástarsaga er stuttur og brotakenndur prósatexti sem verður að ástarsögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.