Erlent

Bin Laden gekk um með kúrekahatt

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Osama bin Laden.
Osama bin Laden. Nordicphotos/AFP
Pakistönsk stjórnvöld, einkum leyniþjónusta hersins, fá harða útreið í 336 blaðsíðna skýrslu um leitina að Osama bin Laden og drápið á honum í Abottabad vorið 2011.

Þá eru Bandaríkin sökuð um að hafa í reynd hafið hernað gegn Pakistan með árásinni á Abottabad, þegar bin Laden var drepinn. Árásin sýni gegndarlausn hroka og algera lítilsvirðingu Bandaríkjanna gagnvart fullveldisrétti Pakistans. Jafnframt eru pakistönsk stjórnvöld sökuð um að hafa brugðist algerlega í leitinni að bin Laden sem hafi getað falið sig í landinu í heil níu ár.

Skýrslan átti að vera leynileg en hefur nú verið birt á vefsíðu arabísku fréttastöðvarinnar Al Jazeera.

Fjögurra manna rannsóknarnefnd var falið að rannsaka bæði árásina á Abottabad og hvernig á því stóð að leiðtogi Al Kaída samtakanna hafi getað falið sig í landinu í níu ár, án þess að finnast.

Í skýrslunni koma fram margvíslegar upplýsingar um daglegt líf bin Ladens í Abottabad, þar sem hann leyndist síðustu árin.

Þar kemur meðal annars fram að hann hafi iðulega gengið um með kúrekahatt þegar hann brá sér út í garð. Það hafi verið til þess að hann þekktist síður á ljósmyndum úr gervihnöttum.

Þá kemur fram að hann hafi einu sinni verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur, en var skegglaus í það skiptið og þekktist ekki.

Rannsóknarnefndin hafði víðtækar heimildir og ræddi meðal annars við eiginkonur bin Ladens. 

Nefndin segir augljóst að stjórnvöld hafi brugðist við leitina á þessum eftirsóttasta glæpamanni heims. Annað hvort hafi þau verið vanhæf, eða einhverjir innan leyniþjónustu og hers hafi haldið hlífiskyldi yfir honum.

Það voru bandarískir sérsveitarmenn sem svo réðust inn á heimili bin Ladens í Abottabad aðfararnótt 2. maí árið 2011 og drápu hann.

Pakistönskum stjórnvöldum var ekki tilkynnt um það fyrirfram. Í skýrslunni kemur fram að pakistanski flugherinn hafi fyrst frétt af árásinni í sjónvarpsfréttum.

Í skýrslunni er haft eftir Ahmed Shúja Pasha, sem var yfirmaður leyniþjónstu hersins, ISI, að Pakistan hafi verið orðið veikburða ríki og háð Bandaríkjunum: „Við vorum mjög veikburða ríki og líka hrætt ríki," sagði Pasha við nefndina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×