Menning

Ljóðabók í efsta sæti metsölulista

Bjarki Karlsson tekur á móti verðlaununum.
Bjarki Karlsson tekur á móti verðlaununum.
Sá fáheyrði viðburður varð í dag að í efsta sæti á Metsölulista Eymundsson situr nú ljóðabók.

Það var bókin Árleysi alda eftir Bjarka Karlsson, sem nýverið hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið, sem náði þessum sjaldséða árangri.

Bókin kom út þann 10. þessa mánaðar, náði öðru sæti listans vikuna eftir útgáfu og nú komin á toppinn í annarri viku frá útgáfu. Þriðju prentunar bókarinnar er beðið með óþreyju í verslunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.