Menning

Leyfir fólki að gægjast í kistilinn

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðrún Erla. Gjörningurinn hennar nefnist Hinsegin minningar um nokkra þeirra sem settust að í hjarta mér.
Guðrún Erla. Gjörningurinn hennar nefnist Hinsegin minningar um nokkra þeirra sem settust að í hjarta mér. Fréttablaðið/Stefán
Ljóðadagskráin í Iðu Zimsen bókakaffi hefur yfirskriftina Sodo Poesy. Þar lesa Auður Ava Ólafsdóttir, Ásdís Óladóttir og Eva Rún Snorradóttir úr verkum sínum og ljóð eftir Hörð Torfason verða túlkuð af Barða Guðmundssyni. Jafnframt opnar þar sýning í farandgalleríi Magnúsar Gestssonar, Gallerí Gesti, á verki myndlistarkonunnar G.ERLU sem hún nefnir Hinsegin minningar um nokkra þeirra sem settust að í hjarta mér.



„Galleríið hans Magnúsar er lítil taska og ég geri hana að mínu rými. Leyfi fólki að gægjast ofan í kistilinn minn,“ segir G.ERLA sem heitir fullu nafni Guðrún Erla. Hún segir um gjörning að ræða sem kallist á við annan sem hún hafi verið með í Galleríi Suðurgötu 7 á aðfangadagskvöld 1978.



„Í rauninni hélt ég jól þarna, var með nokkur gömul húsgögn og skreytti jólatré. Gjörningurinn fólst í því að ég tók umbúðir utan af hlutum sem höfðu tilfinningalegt gildi fyrir mig og skrifaði niður minningar sem tengdust þeim.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×