Tíska og hönnun

Taska frá Stellu McCartney vinsæl meðal stjarnanna

Fatahönnuðurinn Stella McCartney hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hún var valin hönnuður ársins á bresku tískuverðlaununum, ásamt því sem hún tók nýlega á móti OBE heiðursorðu frá sjálfri Elísabetu bretadrottningu. Nú er það taska frá henni sem er að gera allt vitlaust í tískuheiminum, en stjörnurnar hafa sést skarta henni hver á fætur annarri. Taskan ber krúttlega nafnið Bailey Boo og er úr gervi leðri, en McCartney er mikill dýravinur og notast ekki við alvöru leður í hönnun sinni.

Hér sést Óskarsverðlaunahafinn Anne Hathaway með töskuna góðu.
Kate Hudson er flott með töskuna.
Ofurfyrirsætan Natalie Vodianova sat fyrir í auglýsingaherferð fyrir vor- og sumarlínu McCartney.
Sienna Miller er mikill tískuspekúlant. Hún skartaði töskunni í grænum lit á dögunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×