Menning

Endurspegla rýmið

Verk eftir michael Mørk. Á mörkum þess að vera málverk og húsgögn.
Verk eftir michael Mørk. Á mörkum þess að vera málverk og húsgögn.
Á laugardaginn verður opnuð sýning á verkum Tuma Magnússonar og Michaels Mørk í listasafni ASÍ.

Sýningin nefnist Á staðnum, en báðir listamennirnir ganga oft út frá eigindum staðarins í verkum sínum. Þannig er það að hluta til að þessu sinni.

Michael Mørk sýnir verk sem liggja á milli þess að vera annars vegar málverk og húsgögn og hins vegar málverk og ljósmynd.

Verkin eru geómetrískt uppbyggð og leitast við að endurspegla rýmið og gera það að virkum hluta verkanna.

Tumi Magnússon sýnir ljósmyndaverk sem fást við afar hversdagsleg fyrirbæri. Þau eru unnin og sett upp á rökréttan en óhefðbundinn hátt. Hann sýnir einnig vídeóverk sem tengjast ljósmyndunum en nálgast viðfangsefnið frá öðru sjónarhorni.

Sýningin verður opnuð klukkan 15.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×