Menning

Hinsegin bókavaka í Iðu

Meðal þeirra sem lesa úr verkum sínum í Iðu Zimsen á laugardagskvöldið er Sjón sem les úr skáldsögu sinni Mánasteini.
Meðal þeirra sem lesa úr verkum sínum í Iðu Zimsen á laugardagskvöldið er Sjón sem les úr skáldsögu sinni Mánasteini. Fréttablaðið/Arnþór
Bókaverslunin Iða efnir til bókmennta- og upplestrarveislu í versluninni Iðu Zimsen á Vesturgötu á laugardagskvöldið klukkan 18. Tilefnið er að meðal útgáfuefnis á þessu ári eru óvenjumargar bækur sem fjalla um líf og reynslu samkynhneigðs fólks, bæði frumsamið íslenskt efni, skáldskapur, minningar og fræðirit svo og þýðingar merkra bóka.



Á hinsegin bókavöku Iðu les Jónína Leósdóttir upp úr minningum sínum, Við Jóhanna, og Sjón les upp úr nýrri skáldsögu sinni, Mánasteinn – drengurinn sem aldrei var til. Einnig les Ásdís Óladóttir upp úr ljóðabók sinni, Innri rödd úr annars höfði, sem kemur út á næstunni. Af öðru efni íslensku sem lesið er upp úr er fræðirit Gunnars Karlssonar sagnfræðings, Ástarsaga Íslendinga að fornu, þar sem hann fjallar meðal annars um forna íslenska vitnisburði um fólk sem elskaði sitt eigið kyn.



Tvær þýðingar sem flokka má sem hinsegin bækur eru í hópi útgáfubóka ársins: Austurríska minningasagan Mennirnir með bleika þríhyrninginn, sem lýsir reynslu homma í fangabúðum nasista í heimsstyrjöldinni síðari, og annar hluti þríleiksins Þerraðu aldrei tár án hanska eftir sænska rithöfundinn Jonas Gardell, Sjúkdómurinn.



Stjórnandi bókavökunnar og kynnir í Iðu Zimsen er Þorvaldur Kristinsson. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.