Balotelli besta lausnin við kynþáttafordómum á Ítalíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2013 11:15 Mario Balotelli. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ítalska knattspyrnugoðsögnin Gigi Riva telur að Mario Balotelli, leikmaður AC Milan og ítalska landsliðsins, sé besta vopnið í baráttunni gegn kynþáttafordómum á Ítalíu en kynþáttaníð úr stúkunni hefur verið mjög áberandi á þessu tímabili og hefur Balotelli fengið að kynnast því sjálfur. Mario Balotelli hefur skorað 7 mörk í 6 deildarleikjum síðan að hann kom til AC Milan frá Manchester City í janúar. Hann er án nokkurs vafa nýja hetjan í ítalska fótboltanum og það telur Riva að geti hjálpað mikið í baráttunni á móti kynþáttfordómum á Ítalíu. Gigi Riva er orðinn 68 ára gamall en hann er markahæsti leikmaður ítalska landsliðsins frá upphafi með 35 mörk í 42 leikjum frá 1965 til 1974. Hann lék nær allan sinn feril með Cagliari. „Balotelli er mikill karakter með sterka siðferðiskennd. Það væri besta lausnin við kynþáttafordómum á Ítalíu að hafa svartan leikmann sem stærstu stjörnuna í ítalska boltanum," sagði Gigi Riva og bætti við. „Ég lít á Balotelli sem táknmynd þess að vera Ítali og þess vegna er hann mjög mikilvægur. Hann getur verið dæmisagan í baráttunni við að útrýma því ógeði sem kynþáttafordómar eru," sagði Riva.
Ítalski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira