Menning

Hilmir Snær leikstýrir Monty Python-söngleik

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Hilmir Snær Guðnason heldur mikið upp á Monty Python-hópinn.
Hilmir Snær Guðnason heldur mikið upp á Monty Python-hópinn. Fréttablaðið/Vilhelm

„Það verður landslið grínista sem tekur þátt,“ segir Hilmir Snær Guðnason leikari. Hann sest í leikstjórastólinn í lok árs þegar hann setur á svið söngleikinn Spamalot í Þjóðleikhúsinu.

Söngleikurinn byggir á kvikmyndinni „Monty Python and the Holy Grail“ frá árinu 1975 og hefur verið settur upp víða frá 2004. „Monty Python er svona grúppa eins og Fóstbræður. Ég var nú í Fóstbræðrum á sínum tíma og söngleikurinn minnir svolítið á það. Þetta er álíka aulalegt grín, svo þetta verður þrælskemmtilegt,“ segir Hilmir, en meðal þeirra sem leika og syngja verða þau Örn Árnason, Selma Björnsdóttir, Eggert Þorleifsson og Jóhann G. Jóhannsson. „Svo fengum við Maríus Sverrisson til að vera með en hann er búinn að slá í gegn sem söngleikjastjarna úti í Þýskalandi. Hann hefur ekki gert mikið hér heima svo þetta er mikill sigur fyrir okkur,“ segir Hilmir.

En er leikstjórn söngleikja eitthvað sem koma skal? „Nei þetta verður sennilega fyrsti og síðasti söngleikurinn sem ég leikstýri,“ segir hann og hlær, en hlakkar til að takast á við verkefnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.